Orð fá því ekki lýst hve mikið er hægt að spara sér í tíma með því að vera tengdur vefþjónustum Landsbankans og Íslandsbanka. Margir eru óöruggir við notkun þessara aðgerða og því tilvalið að fá sér eitt stutt námskeið til þess að átta sig á notkun þeirra. Þáttakendum er hjálpað til að nota raunfærslur síns fyrirtækis til þess að gera færslur, afstemma og fleira. Einnig er hægt að nota þennan klukkutíma í almenna kynningu til þess að átta sig á kerfi. Allt að 3 þáttakendur geta verið saman á námskeiði.
Verð er aðeins 5.000
Gott er að stofna notanda hjá B2B Landsbankanum sem er með lesaðgang að bankabókum og kreditkortum og fullan aðgang að greiðsluseðlum. Ef þú ert hjá Íslandsbanka, þarf að stofna sér vefnotanda með aðgang að lestri bankabóka og fullan aðgang að greiðsluseðlum.
Tímalengd: 01:00
5000 ISK
Hægt er að panta 30 mínútna aðstoð gegnum netið til þess að fara í atriði sem þú óskar eftir. Samtalið fer gegnum Skype (Þú bætir við notanda: Xbokhald) en svo opnar þú session og sérð á skjánum þínum allt sem er gert í kerfinu. Þannig getur þú bæði látið skoða hvort eitthvað er rangt gert og lært á kerfið í leiðinni.
Tímalengd: 00:30
3000 ISK
Farið yfir hvernig bankar og kort skráð í kerfi, dagbókafærslur, nokkrar færslur bókaðar af fylgiskjölum þáttakenda og allt að 5 flýtifærslur og 3 vörur stofnaðar. Viðskiptamaður stofnaður og reikningur gerður á viðskiptamann notanda. Skýrslur skoðaðar ásamt því hvernig VSK er skilað. Þetta námskeið er í um 2 klukkustundir og gert ráð fyrir að þáttakendur kunni að gera allar helstu aðerðir bókhaldskerfis án mikillar hjálpar eftir það. Mælt er með að þáttakendur mæti með fartölvu með WiFi korti en þó ekki nauðsynlegt.
10.000 kr. + VSK
Tímalengd: 02:00
10000 ISK
Hér er áherslan á vefverslun og gert ráð fyrir að vefverslun virki með nokkrum vörum þegar námskeiði er lokið. Farið er í eiginleika, skráningu á mörgum myndum fyrir vörur, hvernig innkaupaferli viðskiptavinar er háttað og hvernig vefverslunarkerfi virkar. Eftir þetta námskeið á vefverslun notanda að virka að grunninum til, viðskiptavinir að geta framkvæmt kaup og notandi á að vera fær um að bæta við nýjum vörum inn að vild í vefverslun. Mælt er með að þáttakendur mæti með fartölvu með WiFi korti en þó ekki nauðsynlegt.
Hér er áherslan á launakerfi og gert ráð fyrir að þáttakendur geti reiknað laun, sett upp launamenn og skilað upplýsingum rafrænt til RSK að námskeiði loknu. Hjálpað er til við uppsetningu á einum til tveimur launamönnum hjá þáttakendum og laun reiknuð. Sýnt er hvernig launafrádráttur virkar og hvað skal gera til að skila viðeigandi skýrslum til lífeyrissjóða, RSK og hvernig skal bóka launagreiðslur í fjárhagsbókhald. Gert er ráð fyrir að þetta námskeið taki um 1.5 klst. Mælt er með að þáttakendur mæti með fartölvu með WiFi korti en þó ekki nauðsynlegt.
7.500 kr. + VSK
Tímalengd: 01:30
7500 ISK
Ingvar kennir klst hraðnámskeið vegna bankaþjónusta og "quick intro" á kerfið á Miðvikudögum og Fimmtudögum.
Ingvar tekur notendur í einkanámskeið á Miðvikudögum og Föstudögum.
Farið er í þau atriði sem þú óskar eftir gegnum netið og færð þú bæði skýringar gegnum síma auk þess sem þú sérð allt sem gert er á skjánum þínum jafnhliða og það gerist.